Í dag rennur út fresturinn sem skuldabréfaeigendur Wow air gáfu Skúla Mogensen forstjóra félagsins og Indigo Partners til að ná samkomulagi um fjárfestingu síðarnefnda félagsins í lággjaldaflugfélaginu.

Munu félögin senda frá sér tilkynningu um málið í dag eða á morgun til kauphallarinnar að því er Túristi greinir frá.