Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland, lækkaði um 0,28% í um 3,6 milljarða króna viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1.669,50 stigum. Aðalvísitala Skuldabréfa hækkaði um 0,04% og stendur nú í 1.353,75 stigum í tæplega 1,8 milljarða króna viðskiptum.

Einungis tvö félög lækkuðu í virði í kauphöllinni í dag, það er Marel sem lækkaði um 2,06% í 307 milljón króna viðskiptum, niður í 333,00 krónur, svo og Icelandair sem lækkaði um 2,16% í rétt tæplega 389 milljón króna viðskiptum. Bréf Icelandair standa því nú í 15,85 krónum á hlut. Lækkun bréfa þessara tveggja félaga gera því að verkum að Úrvalsvísitalan lækkar í dag.

Önnur bréf í Úrvalsvísitölunni hækkuðu. Mest var hækkun bréfa Símans, eða um 2,87% og náði gengi bréfanna upp í 3,94 krónur í 398 milljón króna viðskiptum. Næst mest hækkun var á gengi Haga, sem hækkuðu um 2,79% í 359 milljón króna viðskiptum upp í 36,90 krónur. Mestu viðskiptin voru með bréf N1 en félagið hækkaði um 2,21% í dag og standa bréf þess í 115,50 krónum á hlutinn.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma stóð í stað í dag í 3,6 milljarða viðskiptum. Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,1% í dag í 1,7 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í litlum viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1,7 milljarða viðskiptum.