Lilja Alfreðsdóttir hefur skipað Magnús Geir Þórðarson, núverandi Útvarpsstjóra hjá Ríkisútvarpinu, sem Þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára frá og með áramótum. Þar með verður Ari Matthíasson, einn sjö umsækjenda um stöðuna, sem verið hefur í embættinu síðustu fimm árin ekki endurráðinn.

Magnús Geir stundaði leikstjórnarnám við Bristol Old Vic Theater School (1994) og lauk M.A. gráðu í leikhúsfræðum frá University of Wales (2003). Magnús Geir hefur jafnframt lokið MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2005). Hann hefur langa og víðtæka stjórnunarreynslu og áratuga reynslu af leikhússtörfum. Áður en hann tók við starfi útvarpsstjóra RÚV fyrir tæpum sex árum var hann leikhússtjóri Borgarleikhússins og þar áður var hann leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.

Sjö umsóknir bárust um embætti þjóðleikhússtjóra. Þjóðleikhúsráð veitti umsögn, í samræmi við ákvæði leiklistarlaga, og skipaði ráðherra í kjölfarið hæfnisnefnd til að meta hæfi umsækjenda nánar. Nefndin framkvæmdi mat á umsækjendum á grundvelli umsóknargagna og viðtala og skilaði niðurstöðu til ráðherra þar sem fjórir umsækjendur voru metnir hæfastir. Ráðherra boðaði þá í viðtal í kjölfarið þar sem áhersla var lögð á stjórnunar- og leiðtogahæfileika til viðbótar og stuðnings við það mat sem þegar hafði farið fram.

„Ég er í skýjunum með þennan mikla heiður og að vera valinn úr hópi svo margra góðra umsækjenda. Eins og ég nefndi þegar ég skýrði ykkur frá ákvörðun minni um að sækja um starf þjóðleikhússtjóra þá hefur ástríða mín fyrir leikhúsinu aldrei slokknað enda hafði ég eytt allri starfsævi minni þar áður en ég hóf störf á RÚV fyrir sex árum. Um leið er tilfinningin ögn tregablandin að kveðja RÚV og ykkur öll,“ segir Magnús Geir í tölvupósti til starfsmanna RÚV.