Fótboltasíðan 433.is sem stofnuð var árið 2012, hefur verið tekin yfir af Vefpressunni og verður síðan nú hluti af vefsvæði Pressunar.

Samkomulag þess efnis náðist við Móa internet ehf. í gær, en áfram verður Hörður Snævar Jónsson ritstjóri síðunnar. Arnar Ægisson er framkvæmdastjóri síðunnar og Björn Ingi Hrafnsson útgefandi.

Áfram verður vefurinn aðgengilegur á slóðinni 433.is en í fréttatilkynningu um yfirtökuna segir að innan skamms verði hann einnig að finna á vefsvæði Pressunar. Auk þess verði á næstunni kynntar margvíslegar nýjungar á síðunni til að auka þjónustu við lesendur.