Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 2,29% í dag og endaði í 1,797 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,43% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 6,84% í viðskiptum sem hljóða upp á heila 3,2 milljarða króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 35,15 krónur. Velta með bréf Icelandair nam 53% heildarveltu hlutabréfa fyrir daginn. Ástæða þess að Icelandair hækkaði svo mikið er líkast til sú að fyrirtækið birti uppgjör sitt fyrir árið 2015 í gær og lýsti þar góðum árangri.

Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,98% í 155 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 51,70 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita um 0,86% í 409 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Reita er þá 80,4 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa HB Granda um 0,53% í 209 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 37,7 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmur 6,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,6% í dag í 6,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 5,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 1,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,4% í 3,9 milljarða króna viðskiptum.