Dohop hefur gert verðkönnun á flugi frá Íslandi næstu viku og skoðað breytingar á flugverði til áfangastaða þar sem samkeppni er markaðnum. Niðurstöður Dohop sýna að heilt yfir hækkar flugverð um 10%, mest til nálægra borga en þó helst verð á flugi til Bandaríkjanna stöðugt.

Dohop bar saman meðalverð til nokkurra vinsælla áfangastaða á næstu vikum  Fjögur flugfélög fljúga reglulega til London en British Airways er dýrast. Flugmiðinn hjá þiem kostar um 62 þúsund að meðaltali, en Icelandair, WOW air og easyJet bjóða öll fargjöld báðar leiðir fyrir um 45 þúsund.WOW air býður að meðaltali lægsta verðið til London fyrir komandi vikur, eða 43.500 krónur að meðaltali báðar leiðir með töskugjaldi.

Mestar hækkanir á komandi tímabili (næstu 8 vikur) eru til áfangastaða sem eru nálægt Íslandi; verð á flugi til Ósló hækkar um 33%, 25% hækkun er á verði á flugi til Edinborgar, 26% til London og 20% til Helsinki. Verð á flugi til Boston og New York helst stöðugt. Vart er mælanlega breyting á verði á flugi til Boston og meðalfarmiðinn til New York lækkar meira að segja um tæp 3% og er eina lækkunin á milli tímabila sem skoðuð eru.

© Aðsend mynd (AÐSEND)