Árshækkun vísitöluneysluverðs í Bandaríkjunum nam 5,4% í júní. Verðbólgan hefur ekki mælst hærri í Bandaríkjunum síðan í ágúst 2008. Verðvísitala notaðra bíla hækkaði um 10,5% milli maí og júní, en þessi liður vegur um þriðjung af hækkun heildarvísitölunnar.

Svokölluð kjarnaverðbólga (e. core-price index), sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, mældist 4,5% í júní og hækkaði um 0,7 prósentustig frá maímánuði. Kjarnaverðbólgan hefur ekki mælsti meiri frá árinu 1991.

Ýmsar ástæður liggja að baki verðbólgunni, þar á meðal bati bandaríska hagkerfisins. Helsta ástæðan fyrir hækkun verðlags er sú að fyrirtæki ná ekki að sinna mikilli eftirspurn, að því er hagfræðingurinn Richard F. Moody, segir við WSJ . Einnig séu fyrirtæki í ferðaþjónustunni farin að hækka verð sín aftur.

Árstíðaleiðrétt verg landsframleiðsla Bandaríkjanna jókst um 6,4% á fyrsta ársfjórðungi. Hagfræðingar sem WSJ leitaði til telja að bandaríska hagkerfið hafi vaxið um 9,1% á öðrum ársfjórðungi á ársgrunni, sem yrði mesti vöxtur VLF í Bandaríkjunum frá upphafi níunda áratugarins.