Veritas Capital ehf. hefur keypt allt hlutafé í Stoð hf., stoðtækjasmíði. Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas Capital segir Stoð var sterkt og rótgróið fyrirtæki, sem við að verði öflug viðbót við samstæðu Veritas. „Stoð starfar á markaði sem liggur fyrir utan núverandi rekstur Veritas samstæðunnar, en fellur þó innan þess ramma og hlutverks sem við höfum skilgreint. Við teljum að við séum að stofna til sambands sem báðir aðilar og ekki síst viðskiptavinir muni hljóta hag af,“ segir Hrund.

Elías Gunnarsson verður áfram framkvæmdastjóri félagsins. Hann segir mikil ánægju með niðurstöðuna. „Við teljum Veritas mjög góðan eiganda og teljum að niðurstaða söluferlisins sé jákvæð fyrir félagið, starfsfólk þess og viðskiptavini,“ segir Elías.

Stoð er þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, á Íslandi og í Danmörku, sem stofnað var árið 1982. Félagið sérhæfir sig í heildarlausnum fyrir fatlaða, aldraða, íþróttamenn og aðra og leggur metnað í sérhönnun og framleiðslu á vörum sem eru til þess fallnar að auka lífsgæði viðskiptavina. Stoð framleiðir hvers konar spelkur og gervilimi, sérsmíðar skó og innlegg, útvegar tilbúna bæklunarskó og selur hjálpartæki og smærri stoðvörur.  Hjá Stoð starfa um 35 manns.

Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu. Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Vistor hf., Distica hf., Artasan ehf. og MEDOR ehf. Vistor er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Distica sérhæfir sig í dreifingu á lyfjum, heilsuvörum, neytendavörum og vörum fyrir heilbrigðisþjónustu, rannsóknarstofur og smásölu. Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu á heilsuvörum, lausasölulyfjum og samheitalyfjum. MEDOR er leiðandi í ráðgjöf, sölu og þjónustu á hágæða lækningartækjum, hjúkrunar- og rannsóknavörum.

Fjármálaráðgjöf Deloitte var ráðgjafi seljenda og Íslandsbanki var ráðgjafi kaupanda.