Vextir á verðtryggðum og óverðtryggðum íbúðalánum hafa farið lækkandi undanfarin misseri og hafa sjaldan verið lægri. Hafa óverðtryggðir vextir hafa lækkað einna mest, en frá áramótum hafa lægstu vextir verðtryggðra íbúðalána lækkað úr 3,15% í 2,77% en meirihluti íbúðalána Íslendinga er verðtryggður.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs, en þar segir jafnframt að vaxtalækkanir geti stuðlað að hærra íbúðaverði. Eins og staðan er nú hafa vextir á íbúðalánum mikið að segja um hvernig verðbólga þróast næstu misserin, enda er óvenju stór hluti verðbólgunnar háður húsnæðisverði um þessar mundir að því er segir í fréttatilkynningu sjóðsins.

Hærri vextir gera það dýrara fyrir fólk að taka há lán og leiða því að öðru óbreyttu til minni hækkunar íbúðaverðs. Lægri vextir gera fólki hins vegar auðveldara fyrir að ráða við greiðslubyrði af háum lánum og því geta vaxtalækkanir stuðlað að hærra íbúðaverði.

Seðlabankinn hefur talsvert um það að segja hvernig vextir á íbúðalánum þróast en vaxtaákvarðanir bankans varðandi stýrivexti hafa áhrif á vexti íbúðalána.

Bæði verðtryggðir og óverðtryggðir vextir hafa lækkað

Óverðtryggðir vextir íbúðalána hafa lækkað hvað mest hér á landi undanfarin ár en frá janúar 2016 til janúar 2017 lækkuðu lægstu óverðtryggðu vextirnir úr 6,75% í 5,87%.

Það sem af er þessu ári hafa bæði óverðtryggðir og verðtryggðir vextir lækkað. Í upphafi ársins voru lægstu breytilegu verðtryggðu vextir íbúðalána 3,15% en í byrjun október voru þeir komnir í 2,77%. Þess má geta að meirihluti íbúðalána er verðtryggður.

Almenningur á mikið undir vaxtastiginu

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs segir að síðustu mánuði hafi verulega hægt á hækkunum húsnæðisverðs sem hafi talsverð áhrif á þróun verðbólgu. „Stýrivextir Seðlabankans hafa áhrif á íbúðaverð og hlýtur fasteignamarkaðurinn að vega nokkuð þungt í vaxtaákvörðunum bankans um þessar mundir,“ segir Ólafur.

„Skoðanakannanir meðal aðila í fjármálageiranum benda jafnframt til þess að þeir hafi væntingar um lægri langtímavexti en áður. Af þessum sökum verður sérlega áhugavert að fylgjast með því hvernig vextir íbúðalána þróast næstu misserin. Þar á almenningur mikið undir, enda hafa vextir áhrif á bæði greiðslubyrði lána og verð íbúða.“