Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu, eftir áratug í starfi. Viðar mun láta af störfum um næstu mánaðarmót en verður áfram stjórn félagsins til ráðgjafar næstu mánuði.

Herdís Fjeldsted, formaður stjórnar Valitor, tekur tímabundið við starfi forstjóra. Hún mun gegna starfinu þar til stjórn hefur ráðið forstjóra til frambúðar. Þór Hauksson, varaformaður stjórnar, tekur við sem stjórnarformaður á meðan Herdís sinnir starfi forstjóra.

Rekstur Valitor hefur verið þungur undanfarin ár, en félagið er í eigu Arion banka. Valitor tapaði tíu milljörðum króna á síðasta ári. Bankinn hefur haft félagið til sölu í rúmlega tvö ár. Bókfært virði Valitor lækkaði úr 15,8 milljörðum króna í 6,5 milljarða króna á árinu 2019.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor segir þetta góðan tímapunkt til að stíga til hliðar. „Ég hef stýrt þessu góða fyrirtæki í viðburðarík 10 ár og verkefnin hafa verið fjölbreytt og krefjandi. Ég hef tekið þátt í mikilli uppbyggingu og markaðssókn Valitor erlendis og nú síðast farið fyrir gagngerri endurskipulagningu á starfseminni í góðu samstarfi við stjórn félagsins. Valitor er fjárhagslega sterkt fyrirtæki með öflugt starfsfólk og því vel búið til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Ég tel þetta því vera rétta tímann til að stíga til hliðar og fela öðrum að taka við keflinu. Þakkir til alls þess góða fólks sem ég hef starfað með á þessum áratug og óska ég félaginu og starfsfólki þess alls hins besta í framtíðinni.“