Í maí 2019 var vöruútflutningur í greiðslujöfnuði áætlaður 64,1 milljarður en vöruinnflutningur í greiðslujöfnuði áætlaður 65,9 milljarðar. Frá þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar .

Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 1,8 milljarða. Í sama mánuði var þjónustujöfnuður áætlaður jákvæður um 19,3 milljarða en útflutt þjónusta var áætluð 56,2 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 36,9 milljarðar.

Í maí 2019 var því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 120,4 milljarðar en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var 102,9 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður var því áætlaður jákvæður um 17,5 milljarða í maí 2019.