Gert er ráð fyrir 8,5% samdrætti landsframleiðslu á þessu ári en viðspyrna hefjist næsta haust í nýrri þjóðhagsspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2020-2023. Efnahagsbatinn verði þó hægur fyrst um sinn.

Hagfræðideild spáir 3,4% hagvexti árið 2021 og um 5% hagvexti árin 2022 og 2023. Spáin hljóðar upp á að atvinnuleysi verði að meðaltali 7,8% á þessu ári og hækki í 8,4% árið 2021 en lækki síðan í 5,8% árið 2022 og 4,8% árið 2023.

Í spá Hagfræðideildar er miðað við að eitt eða fleiri bóluefni verði samþykkt í kringum næstu áramót. Almennu hjarðónæmi verði náð á Íslandi og í helstu viðskiptalöndum okkar á þriðja ársfjórðungi 2021 en vegna sóttvarnaraðgerða muni erlendum ferðamönnum ekki fjölga fyrr en næsta haust.

Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, leggur áherslu á að óvissan sé þó umtalsverð. „Það verður seint lögð of mikil áhersla á að óvissan er gríðarlega mikil, bæði hvað varðar þróun Covid-19-faraldursins og efnahagslegar afleiðingar hans. Í grunnspá okkar gerum við ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist á seinni helmingi næsta árs samhliða því sem faraldurinn gengur niður í kjölfar þróunar bóluefnis og myndun hjarðónæmis hér á landi og í helstu viðskiptalöndum Íslands. Í þessum efnum er ekki á vísan á róa en þetta er þó talin líkleg þróun í ljósi stöðu bóluefnisrannsókna um þessar mundir. Það stefnir í að samdrátturinn í ár verði sá mesti frá lýðveldisstofnun en á móti kemur að við reiknum með að samdráttarskeiðið verði stutt og til að mynda töluvert styttra en síðasta samdráttarskeið.“

Gert er ráð fyrir að útflutningur dragist saman um 30%, einkaneysla dregst saman um 5,5% og heildarfjármunamyndun minnkar um rúmlega 10%. Á móti vegur að samneysla og fjárfestingar hins opinbera aukast verulega auk þess sem innflutningur dregst saman um 22%.

Gert er ráð fyrir komu um 500 þúsund ferðamönnum á þessu ári, 650 þúsund á næsta ári, 1,3 milljón árið 2022 og 1,9 milljón 2023. Þrátt fyrir fall í útflutningi verður lítilsháttar afgangur af viðskiptajöfnuði í ár (+0,1%), minniháttar halli á næsta ári (-0,3%) en vaxandi afgangur árin 2022 (+1,4%) og 2023 (+3,4%).

Ekki er gert ráð fyrir að verðbólga fari á flug þrátt fyrir að krónan hafi veikst. Búist er við að verðbólga verði að meðaltali 3,1% á næsta ári, 2,7% árið 2022 og 2,6% árið 2023. Í spánni segir ólíklegt að stýrivextir muni lækka frekar að svo stöddu. Búist er við að stýrivextir verði óbreyttir í 1% allt næsta ár, hækka í 1,75% árið 2022 og verða 3,5% í lok árs 2023.

Bent er á að fasteignamarkaðurinn hafi tekið verulega við sér í vor í kjölfar vaxtalækkana. Landsbankinn spáir 4,5% hækkun íbúðaverðs á þessu ári og að jafnaði um 4% á ári næstu árin.

Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, fer yfir spánna í myndbandinu hér að neðan: