Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um Þjóðarsjóð að því er fram kemur á vefsíðu ráðsins .

„Viðskiptaráð hefur á fyrri stigum ritað umsagnir um málefnið og lagt þar áherslu á að hugmyndin með sjóðnum sé um margt góð en haft miklar efasemdir um útfærsluna og talið að spurningum væri ósvarað. Þær efasemdir standa enn og í nýju frumvarpi og greinargerð þess fást ekki nægilega góð svör," segir í frétt á síðunni.

Það sem fram kemur í unsögninni er meðal annars að fórnarkostnaður sjóðsins er sagður skýr annað hvort lægri skattar og/eða meiri ríkisútgjöld. Þá kemur jafnframt fram að fá eða engin dæmi eru um þjóðarsjóði í þeim tilgangi að mæta ófyrirséðum áföllum en traust hagstjórn og gott ytra jafnvægi þjóðarbúsins virðist nægja til að ríkið geti brugðist við þeim og að færa megi rök fyrir því að hentugra sé að sjóðurinn sé hluti af efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands.

Viðskiptaráð hefur sett fram hugmynd að Þjóðarsjóði sem væri hagkvæmari og myndi skila beittari ávinningi sem hluti af gjaldeyrisforða Seðlabankans. Miða ætti við nýjasta uppgjör sjóðsins þegar kemur að ráðstöfun úr sjóðnum.

„Viðskiptaráð leggur til að frumvarpið nái ekki fram að ganga en í staðinn verði grundvöllur þeirrar hugmyndar sem hér er lögð fram kannaður."