Stjórn Gamma, sem nú er dótturfélag Kviku banka, afturkallar bónusgreiðslur til 11 starfsmanna fyrirtækisins upp á tugir milljóna árin 2018 og 2019 sem átti eftir að greiða út að því er Fréttablaðið greinir frá. Meðal þeirra sem ekki fá greiðslurnar eru þeir Agnar Tómas Möller og Jónmundur Guðmundsson sem starfa í dag hjá eignastýringu Kviku í dag.
- Sjá einnig: 1,5 milljarða tap Upphafs fasteigna
Jafnframt vill stjórnin að fyrrverandi forstjóri og sjóðsstjóri hjá félaginu, þeir Valdimar Ármann og Ingvi Hrafn Óskarsson, endurgreiði félaginu um 12 milljónir í kaupaukagreiðslur sem höfðu þegar verið greiddar út.
Ingvi Hrafn var sjóðsstjóri Novus sjóðs Gamma sem átti fasteignafélagið Upphaf en fyrir ári kom í ljós að eignir félagsins væru mikið ofmetnar en þær voru þá færðar niður úr 5,2 milljörðum í 40 milljónir.
Kaupaukarnir, eða bónusarnir voru vegna góðrar afkomu hjá Gamma árin 2017 og 2018, en samkvæmt reglum FME mátti fresta 40% þeirra um þrjú ár sem nam rúmlega 33 milljónum í lok ársins 2019. Stjórnin telur nú ekki rétt að greiða út kaupaukana vegna þess að afkoma félagsins hefur versnað til muna, en tap þess síðustu 18 mánuði nemur tæplega hálfum milljarði.
Kvika greiddi 839 milljónir í reiðufé fyrir Gamma þegar félagið var keypt í mars á síðasta ári, en þá var heildarsöluverðið áætlað 2,54 milljarðar en sú tala er nú talin mun lægri þar sem afgangurinn var greiddur í formi hlutdeildarskírteina í sjóðum Gamma og árangurstengdra þóknana.
Hér má lesa frekari fréttir um málefni fjárfestingarsjóða Gamma, það er Anglia, Novus og Upphafs:
- 19. september 2020 - 1,5 milljarða tap Upphafs fasteigna
- 25. mars 2020 - Tap Gamma jókst um nærri fimmtung
- 24. mars 2020 - VHE greiddi Pétri 58 milljónir
- 27. febrúar 2020 - Verðmiði Gamma lækkað um 1,7 milljarða
- 31. október 2020 - Endurskipulagningu Upphafs lokið
- 30. október 2020 - Fara í úttekt á Upphafi frá upphafi
- 9. október 2019 - Kvika kaupir helming nýrra bréfa Upphafs
- 8. október 2019 - Samþykktu lækkun vaxta í 6%
- 8. október 2019 - Segir tap slitið úr samhengi
- 5. október 2019 - Einungis farið í eitt verkefni
- 3. október 2019 - Eitraður kokteill
- 2. október 2019 - Bréf Kviku lækka um 6,25%
- 2. október 2019 - Grunur um óeðlilegar greiðslur
- 1. október 2019 - Upphaf tapaði 1,1 milljarði
- 30. september 2019 - Bréf TM og Sjóvá lækka
- 30. september 2019 - Gamma rýrir afkomu tryggingafélaganna
- 30. september 2019 - „Með ólíkindum að menn hafi klúðrað þessu“
- 30. september 2019 - Viðsnúningur TM allt að 490 milljónir
- 30. september 2019 - Sjóðir Gamma standa verr en talið var