Í sameiginlegu bréfi ASÍ og SA sem sent var Fjármálaeftirlitinu (FME) í dag, lýsa samtökin því yfir að þau séu ósammála þeirri afstöðu FME, sem fram kemur í dreifbréfi til lífeyrissjóða dagsett 7. júlí 2017, að tilgreind séreign sé flytjanleg frá þeim sjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um var skilningur lífeyrissjóðanna á því hvernig túlka eigi ákvæði laganna mismunandi, en FME birti svo sína túlkun sem send var út með fyrrnefndu bréfi.

Í bréfi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins segjast samtökin hafa fulla heimild til að gera kjarasamning um tilgreinda séreign sem lúti öðrum reglum en ákvæðum lífeyrissjóðslaganna um séreign hvað varðar vörsluaðila, ávöxtun og útgreiðslu.

Ennfremur að samtökin hafi gert kjarasamning um að réttur launamanns til að ráðstafa hækkun iðgjalds í tilgreinda séreign snúi að þeim lífeyrissjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar. Samtökin beina því til FME að það endurskoði tilmælin til lífeyrissjóðanna segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.