Ásmundur Einar Daði, félags- og barnamálaráðherra, hefur samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi óskað eftir því að fjárframlög til stofnframlaga til byggingar eða kaupa almennra íbúða verði 3,7 milljarðar króna á næsta ári. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins þar sem segir að áður hafi verið ráðgert að dregið yrði úr fjölgun leiguíbúða í almenna íbúðakerfinu.

Upphaflega hafi átt að reisa 300 slíkar íbúðir á næsta ári en nú standi til að tvöfalda fjöldann og byggja 600 íbúðir með slíkum stofnframlögum. Aukningin er sögð hluti af umsömdu framlagi til lífskjarasamninganna frá því í vor.

„Ég hef lagt mikla áherslu á að húsnæðismál séu velferðarmál og því verður mjög ánægjulegt að fylgja þessari uppbyggingu eftir. Þetta er auk þess einn af þeim þáttum sem lagt var upp með í tengslum við lífskjarasamninga á vinnumarkaði og það er ánægjulegt að þeir séu nú byrjaðir að skila sér í aðgerðum,” er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra í fréttinni á vef Stjórnarráðsins.