Vinnslustöðin hf. hefur eignast öll hlutabréfin í Útgerðarfélaginu Glófaxa ehf. í Vestmannaeyjum og tekur við félaginu 1. september 2017. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu VSV.

Kaupsamningurinn var undirritaður með venjulegum fyrirvara um fjármögnun, samþykki stjórnar VSV og samþykki Samkeppniseftirlits. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Útgerðarfélagið Glófaxi gerir út tvo báta, nótaskipið Glófaxa VE-300 og línu- og netabátinn Glófaxa II VE-301. Seljendurnir, Bergvin Oddsson og fjölskylda hans, halda eftir Glófaxa II og 50 þorskígildistonnum og stunda útgerð áfram. Með samningi sínum um kaupin á Glófaxa ehf. eykur Vinnslustöðin heildaraflamark sitt um 800 þorskígildistonn.

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir við tilefnið: „Bergvin Oddsson og fjölskylda hans buðu okkur forkaupsrétt að félaginu með tilheyrandi aflaheimildum og skipi. Með því var okkur sýnt traust og trúnaður sem við erum fjölskyldunni afar þakklát fyrir.

Það er beinlínis yfirlýst stefna Vinnslustöðvarinnar að halda aflaheimildum í byggðarlaginu svo sem kostur er. Viðhorf okkar og seljendanna fara saman að þessu leyti og eru í samræmi við hagsmuni byggðarinnar og atvinnulífsins í Vestmannaeyjum.“