Stjórn VÍS tók í dag ákvörðun um að halda áfram endurkaupum á eigin hlutum félagsins í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Um er að ræða fimmtu endurkaupaáætlun félagsins sem kynnt er frá því að aðalfundur 2014 veitti slíka heimild.

Aðalfundur 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess efnis að kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum.

Stjórn VÍS ákvað svo 30. apríl 2015 að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að 1 milljarð króna að markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu 4,88% af útgefnu hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem aðalfundur hafði heimilað.

Á aðalfundi 16. mars 2016 var samþykkt að lækka eigin hluti VÍS. Hlutafjárlækkun var framkvæmd þann 13. apríl 2016 en þá fór hlutafé félagsins úr 2.438.480.516 krónum að nafnverði í 2.296.436.567 krónur að nafnverði.

Þann 24. apríl 2016 ákvað stjórn VÍS að halda endurkaupum áfram. Samkvæmt þeirri endurkaupaáætlun var áætlað að kaupa að hámarki hluti að nafnverði 70 milljón króna eða sem samsvarar 3,05% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna skyldi þó ekki verða hærri en 600 milljónir króna. Endurkaupum þessum var lokið tæpum fjórum mánuðum seinna.

Heimild aðalfundar 2015 er enn í gildi en eftir standa um 2,31% af útgefnum hlutum félagsins sem félaginu er heimilt að endurkaupa.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin nú kveður á um að verði keyptir, eru að nafnverði 12,5 milljón króna hlutir, en það jafngildir um 0,55% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 100 milljónir króna. Heimildin gildir til 12. september 2016.

Endurkaupin verða gerð af Arctica Finance hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða samkvæmt tilkynningunni framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verði að hámarki 1.155.814 hlutir sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í júlí 2016.