Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2018 er 140,2 stig og hækkar um 0,2 % frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Vísitalan gildir fyrir október 2018. Innflutt efni hækkaði um 0,5% (áhrif á vísitölu 0,1%).

Innlent efni hækkaði um 0,2% (áhrif á vísitölu 0,1%) en á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,8%.