Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,3% milli apríl og maí 2019. Frá Þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar.

„Sjávarafurðir hækkuðu um 2,5% (áhrif á vísitölu 0,6%), annar iðnaður hækkaði um 1,4% (0,3%), matvæli hækkuðu um 0,8% (0,2%) og afurðir stóriðju hækkuðu um 0,6% (0,2%)," segir í fréttinni.

„Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 7,8% frá maí 2018 til maí 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 18,5%, annar iðnaður hækkaði um 12,7%, matvæli hækkuðu um 5,2% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 1%. Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 5,7%."