Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,17% í október og stendur í 594 stigum. Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,0%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 4,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 17,6% að því er kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.