Ný útgáfa tískutímaritsins Vogue er væntanleg næsta vor en tímaritið sem mun bera titilinn Vogue Scandinavia mun vera gefið út á ensku og einblína á norræna hönnun. Frá þessu er greint á vef Vísis .

„Síðustu ár hefur skandinavísk hönnun og einstök menning svæðisins orðið fjölda fólks um heim allan innblástur,“ segir Wolfgang Blau forseti Condé Nast sem á Vogue.

Blaðinu verður ritstýrt af Martinu Bonnier sem starfaði sem ritstýra Damernas Värld eins stærsta lífsstílstímarits Norðurlandanna.

„Ég er spennt fyrir því að koma Vogue Scandinavia á tímum þar sem tíska er að breytast gríðarlega. Norðurlöndin eru frábær í því að aðlagast að breytingum og tískustraumum með hraði. Ég er himinlifandi yfir því að loksins verði til Vogue fyrir norðurlöndin og er spennt að deila með fleirum norrænum lífstíl og þeirri miklu sköpunargáfu sem hér finnst,“ sagði Bonnier.