Vörður hefur tvöfaldað tilkynningarfrest vegna veikinda eða slysa í sjúkdómatryggingu. Lögboðinn lágmarksfrestur er 12 mánuðir en fresturinn hjá Verði verður nú tvö ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir að breytingin sé gerð viðskiptavinum til hagsbóta þar sem fæstir hugsi um að sækja bætur úr tryggingum þegar veikindi ber að garði. Önnur tryggingafélög hafa enn sem komið er ekki fylgt fordæmi Varðar. Guðmundur Jóhann Jónsson er forstjóri Varðar