Útflutningur í nýliðnum ágúst nam 45,4 milljörðum króna og innflutningur í sama mánuði fyrir 57,5 milljarða króna (fob verðmæti) og vöru vöruviðskipti óhagstæð um 12 milljarða í mánuðinum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Í sama mánuði í fyrra voru vöruviðskiptin óhagstæð um 18,8 milljarða króna á gengi hvors árs sem þýðir hallinn í nýliðnum ágúst var því 6,7 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 12,7 milljörðum króna, samanborið við 18,7 milljarða í ágúst 2018.

Á tímabilinu janúar til ágúst 2019 voru fluttar út vörur fyrir 430,4 milljarða króna en inn fyrir 508,8 milljarða (fob verðmæti). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 78,4 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti .Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 121,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn frá janúar til ágúst var því 42,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 91,2 milljörðum króna á tímabilinu janúar til ágúst 2019, en 106,5 milljörðum króna fyrir sama tímabil 2018.

Á fyrstu átta mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruútflutnings 44,9 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 11,7% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 48,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,1% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 10,4% hærra en á sama tíma árið áður. Mest var aukning vegna útflutnings skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og frystum flökum.

Á fyrstu átta mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruinnflutnings 2,2 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 0,4% á gengi hvors árs. Innflutningur jókst mest á unnum hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum. Á móti kom minni innflutningur á flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum.