Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 63,2 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 79,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæplega 16,4 milljarða króna. Í maí 2018 voru vöruviðskiptin hins vegar óhagstæð um 16,9 milljarða króna á gengi hvors árs. Án skipa og flugvéla var vöruviðskiptajöfnuður óhagstæður um 1,5 milljarð króna í maí 2019 en hann var óhagstæður um 14,5 milljarða í sama mánuði árið áður.

Í maí 2019 var verðmæti vöruútflutnings 10,7 milljörðum króna hærri en í maí 2018, eða 20,5% á gengi hvors árs. Mest var aukningin í viðskiptum með iðnaðarvörur.

Verðmæti vöruinnflutnings í maí 2019 var 10,2 milljörðum króna hærri en í maí 2018 eða 14,7% á gengi hvors árs. Mest var aukning í innflutningi á flutningatækjum.