Stjórn VR hefur samþykkt að draga yfirlýsingu vegna málefna Icelandair til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu VR .

Í yfirlýsingunni sem gefin var út 17. júní var tilmælum beint til stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn lífeyrissjóðsins að sniðganga þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair.

Á heimasíðu VR segir:

Stjórn VR hefur samþykkt að draga yfirlýsingu vegna málefna Icelandair, sem send var út 17. júlí sl., til baka. Verkalýðshreyfingin, sameinuð, gekk fastlega fram þegar samningsréttinum var ógnað. Samningsrétturinn er grundvöllur kjarasamninga og stéttarbaráttunnar. Hann er jafnframt grundvöllur fyrir þeim lífskjörum og réttindum sem við teljum sjálfsögð í okkar samfélagi en hafa áunnist með samstöðu vinnandi stétta.