Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.491 milljarðar á tímabilinu nóvember 2017 til október 2018, sem er 8,5% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar .

Á tímabilinu september-október 2018 var veltan 788 milljarðar eða 6,2% hærri en sömu mánuði árið áður. Á sama tímabili jókst velta í framleiðslu málma um 17,4%, velta í bílaleigu um 17,4% og velta í smásölu um 4,4%. Velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja lækkaði um 7,3% og velta í sjávarútvegi lækkaði um 6,4%.

Sé horft til 12 mánaða tímabilsins nóvember-október jókst veltan einnig mest í framleiðslu málma milli tímabila, um 15,7%, en þar á eftir kemur heild- og umboðsverslun með fisk með 15,1% veltuaukningu.