Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum er orðin meðeigandi í Okada Suisan í Japan, rótgrónu fjölskyldufyrirtæki sem hefur nær 50% hlutdeild á markaði fyrir loðnuafurðir þar í landi. Framkvæmdastjóri VSV segir þetta styrkja og efla sölu- og kynningarstarf vegna íslenskra sjávarafurða yfirleitt á Japansmarkaði að því er kemur fram í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar.

Okada Suisan er stórveldi í framleiðslu og sölu loðnuafurða í Japan. Fyrirtækið á sjálft fjórar verksmiðjur í Japan, eina í Kína og er að auk í samstarfi við fimm aðrar verksmiður í Kína, Tælandi og Indónesíu.

Japanska fyrirtækið selur loðnu og loðnuafurðir flestum verslunum í Japan, þó aðallega þægindaverslunum sem eru um 50.000 talsins. Með kaupunum verður Vinnslustöðin þátttakandi í markaðs- og sölustarfi Okada Suisan í Japan og tekur hér eftir þátt í vöruþróunarstarfsemi Okada Suisan vegna markaða í Japan og vonandi víðar í framtíðinni.

„Japan er og hefur verið mikilvægur markaður fyrir loðnuafurðir frá Íslandi. Með kaupunum tengjumst við þessum markaði mun betur og getum betur uppfyllt kröfur hans. Á endanum eru það auðvitað neytendur í Japan og annars staðar sem skipta mestu máli fyrir okkur og íslenskan sjávarútveg. Neytendur ráða ferðinni,“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV við tilefnið.

Sigurgeir tekur einnig fram að þrátt fyrir að íslensk fyrirtæki hafi áður verslað við VSV boða tíðindin um breytt eignarhald japanska fyrirtækisins ekki breytingar þegar kemur að viðskiptum íslensku fyrirtækjanna við það. „Nei, slíkt stendur ekki til af okkar hálfu, síður en svo. Ég vonast miklu frekar til þess að íslenskir framleiðendur líti á eignaraðild VSV sem tækifæri til að efla og styrkja markaðsstarf í þágu íslenska sjávarútvegsins í heild í Japan,“ segir Sigurgeir.