Bandaríska stjórstjarnan Will Smith bætist í hóp þeirra sem birt hafa myndskeið Björns Steinbekk af eldgosinu í Geldingsdölum. Smith birti í kvöld færslu á Instagram síðu sinni þar sem hann hrósar Birni í hástert.

„Hey, @bsteinbekk þetta er ótrúlegt skot,“ segir Smith meðal annars í færslunni.

Þá veltir Smith upp hvort hann sé undir álögum þar sem þetta sé í þriðja sinn sem eldgos hefst á svæði sem hann hafi heimsótti nýlega. Leikarinn segist ætla að rýna í myndband Björns til að reyna að átta sig á hvernig hann geti rofið álögin.

Smith sótti Ísland heim á síðasta ári og birti meðal annars mynd af sér við Dettifoss í september á Instagram.

Í viðtali við Viðskiptablaðið í vikunni sagði Björn Steinbekk myndskeið hans af gosinu, sem tekin eru upp með dróna, hafði verið spiluð á milli 80 og 90 sjónvarpsstöðvum og líklega hefðu tugir milljóna séð myndbandið. Áhorfendunum mun fjölga enn eftir færslu Smith endar er hann með ríflega 50 milljónir fylgjenda á Instagram. Færslan er þegar komin með 600 þúsund áhorf tveimur klukkustundunum eftir að hún var birt.