Wise hefur gengið frá kaupum á hugbúnaðarfyrirtækinu CoreData Solutions sem þróar og selur stafrænar lausnir á borð við CoreData ECM, en það er málaskrár-, verkefnastjórnunar- og skjalakerfi. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Markmið CoreData er að styðja við stafrænu skrifstofuna þar sem gögn eru örugg og aðgengileg hvaðan- og hvenær sem er. Það aðstoði viðskiptavini að leysa þá áskorun sem „störf án staðsetningar" skapa. Viðskiptavinir CoreData eru meðal annars fjármálastofnanir, lífeyrissjóðir, heilsustofnanir, menntastofnanir og ýmis rekstrarfélög. Hjá CoreData starfa nú 12 manns, þar af 5 á Íslandi.

Flaggskip fyrirtækisins, CoreData ECM, hefur verið í notkun frá árinu 2009. Lausnin  var hönnuð og þróuð sem málaskráarkerfi samkvæmt stöðlum Þjóðskjalasafns Íslands um varðveislu skjala og uppfyllir því ríkustu kröfur um öryggi. Aðrar helstu vörur CoreData eru Gagnaherbergi, Stjórnarvefgátt, Samningakerfi, Umsóknarkerfi, Rafræn skil til Þjóðskjalasafns Íslands og samþætting við rafrænar undirritanir.

Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise:

„Markmið Wise hefur verið að bæði þétta og breikka framboð okkar lausna og geta þannig veitt viðskiptavinum heildstæðar lausnir og stutt þá í að ná sem mestum árangri í sinni stafrænu vegferð.  Tækifæri Wise felst í því að hlusta á viðskiptavini okkar, skilja þeirra áskoranir og bjóða lausnir sem hjálpa þeim að ná árangri. Vörur CoreData eru öflug viðbót við vöru- og þjónustuframboð Wise.

Gunnar Ingi Traustason framkvæmdastjóri CoreData:

„Við erum gríðarlega stolt af þeim vörum og þeirri þjónustu sem við höfum verið að veita. Lausnir okkar hafa verið í fararbroddi í því að gera fyrirtækjum kleift að starfrækja stafræna skrifstofu sem hefur stutt þau á þessum skrítnu Covid tímum ásamt því að auka sjálfsafgreiðslu viðskiptavina þeirra og minnka þannig kolefnisfótspor og pappírsnotkun. Viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með þau gæði, stöðugleika og öryggi sem kerfið hefur haft uppá að bjóða. Það vöruframboð sem við höfum fram að bjóða hjá CoreData Solutions mun breikka það frábæra lausnamengi sem Wise býður upp á í dag. Saman verðum við mjög sterkt afl sem nær að leysa enn betur þær áskoranir sem viðskiptavinir okkar standa frammi fyrir."

Wise hefur verið í rekstri í yfir 26 ár og selur og þjónustar viðskiptahugbúnað frá Microsoft Dynamics 365 Business Central, Power BI, Office365 og TEAMS ásamt því að bjóða eigin sérlausnir. Viðskiptavinir Wise, telja nú um eitt þúsund og spanna flestar atvinnugreinar eins og sveitarfélög, sjávarútvegs-, fjármála- og framleiðslufyrirtæki ásamt verslunum og fyrirtækjum í ýmis konar sérfræðiþjónustu. Vara Wise fyrir sjávarútveg, Wisefish, hefur náð góðri fótfestu á erlendum mörkuðum og er nú notuð í 25 löndum.

Fjárfestingafélagið Adira er stærsti hluthafi Wise. Adira er með ýmsar fjárfestingar á Íslandi og er meðal annars eigandi Nespresso á Íslandi.