Hagnaður Wow air árið 2016 eftir tekjuskatt nam 4,3 milljarðar króna. Árið 2015 hagnaðist Wow air um 1,1 milljarð króna. Tekjur flugfélagsins námu 36,7 milljörðum króna sem er 111% aukning miðað við árið á undan þegar þær námu 17 milljörðum. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsgjöld og tekju tekjuskatt (EBIDTA) var 5,6 milljarðar króna og jókst um 3,2 milljarða milli ára. Rekstrarhagnaður félagsins árið 2016 var 3,7 milljarðar króna samanborið við 1,5 milljarð árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wow air.

„Á síðasta ári bætti félagið sjö þotum við flotann og var með tólf þotur í rekstri í lok ársins; tvær Airbus A320, þrjár Airbus A330 breiðþotur og sjö Airbus A321. Fjórar af þessum þotum eru í eigu félagsins. Í ár mun WOW air bæta við sig fimm glænýjum Airbus þotum og verður þá floti félagsins orðinn 17 þotur,“ segir í tilkynningunni.

Árið 2016 flutti WOW air 1.668.773 farþega en það er 130% fjölgun farþega frá árinu áður. Í ár gerir félagið ráð fyrir því að fljúga með um 3 milljónir farþega. Heildarsætanýting árið 2016 var 88% en árinu áður var heildarsætanýtingin 86%. Á árinu flaug félagið til yfir þrjátíu áfangastaða beggja vegna Atlantshafsins.

Árið 2016 störfuðu 720 manns hjá Wow air sem 157% starfsmannaaukning frá árinu áður en þá störfuðu 280 manns hjá félaginu. Í ár er gert ráð fyrir því að starfsmannafjöldi 1.100 manns.

„Fjölda áfangastaða WOW air í Norður-Ameríku fjölgaði úr tveimur í sjö á síðasta ári. Síðastliðið vor hóf félagið áætlunarflug til vesturstrandar Bandaríkjanna; til Los Angeles og San Francisco. Síðan flug hófst til vesturstrandarinnar hefur fjöldi farþega frá borgunum tveimur aukist um 340%. Einnig hóf félagið flug allan ársins hring til kanadísku borganna Toronto og Montréal en síðan þá hefur fjöldi ferðamanna frá Kanada aukist um 78% á milli ára. New York bættist svo við leiðarkerfið í lok nóvember á síðasta ári,“ er einnig tekið fram í tilkynningunni.

„Árið 2016 var magnað í alla staði og ekki hægt annað en að vera ánægður með þennan frábæra árangur.  Við fórum af stað með háleit markmið um mikla stækkun á öllum sviðum og það er búið að vera óheyrilega gaman að vinna með öllu okkar frábæra starfsfólki við að ná tilsettum markmiðum og gott betur.  Þetta er þeirra sigur.  Að sama skapi er ljóst að samkeppnin til og frá Íslandi sem og yfir hafið hefur aldrei verið meiri. Við höfum aldrei verið jafn vel í stakk búin að takast á við þessar áskoranir og munum halda áfram að lækka fargjöld öllum til hagsbóta“, segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi Wow air.