Wow air mun í dag hefja sölu á flugsætum til Vancouver í Kanada, en áætlunarflug þangað hefst þann 6. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Flogið verður sex sinnum í viku til að byrja með, á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Flogið verður í Airbus A321 vélum og er brottför frá Keflavík kl 17:20. Flugtíminn eru tæpir átta klukkutímar en lent er í Vancouver klukkan 18:15 að staðartíma.

„Í kjölfar mikillar velgengi í Kanada höfum við ákveðið að bæta Vancouver við leiðarkerfi okkar. Það er frábært að geta boðið enn fleirum upp á þann valkost að fljúga ódýrt yfir hafið,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.

Vancouver er sagður vinsæll áfangastaður meðal ferðalanga. Staðurinn státi af stórbrotinni náttúrufegurð auk þess sem Vancouver búi yfir öllu því besta sem einkenni stórborgir, fjölbreyttu mannlífi og menningu. Þá hafi Stanley Park notið mikilla vinsælda en þar sé hægt að finna eitthvað við allra hæfi, til dæmis strendur, vatnagarða og golfvöll.