Yfir 600 milljónir króna hafa safnast á Karolina Fund frá stofnun hópfjármögnunarsíðunnar árið 2012. Um 140 þúsund manns hjálpað fleiri en 660 verkefnum en um 77% hafa náð fjármögnun á síðunni.

Brynjólfur Einar Sigmarsson og Sævar Ólafsson eiga hópfjármögnunarvefinn ásamt Inga Rafni Sigurðssyni, Arnari Sigurðssyni, Lárusi Lúðvíkssyni og Þórarni Jóhannssyni. Vefsíðan er mörgum Íslendingum kunnugt sem vettvangur til að safna fé til skapandi verkefna, allt frá sirkustjaldi til nýrra fjölmiðla.

„Við byrjuðum að vinna að verkefninu með félögum okkar nokkru áður en við hófum störf hjá Origo, nýlega komnir úr námi erlendis og á kafi í íslensku sprotasenunni. Við settum saman öflugt teymi og fórum á fullt að móta hugmyndina á sama tíma og við vorum í harkinu á afar erfiðum vinnumarkaði. Hugmyndin að síðunni kviknaði í raun kjölfar falls bankakerfisins og þeirra vandamála sem steðjuðu að fjármögnun skapandi verkefna", segir Brynjólfur, sem er forstöðumaður reikningshalds hjá Origo.

140 þúsund manns hjálpað fleiri en 660 verkefnum

„Við metum árangur okkar fyrst og fremst í þeirra ánægju að sjá verkefni raungerast og af þeim samfélagslegu áhrifum sem af þeim hljótast. Við erum stolt af árangrinum og erum hvergi nærri hætt," segir Sævar Ólafsson, sem er liðsstjóri stafrænnar sölu og þróunar hjá Origo.

„Góðir hlutir gerist þegar fólk sameinar krafta sína en Karolina Fund hefur verið öflugur farvegur fyrir samfélagsverkefni, sem hafa það að markmiði að láta gott af sér leiða. Hann tekur dæmi um að Ísland hafi lengi verið frjór jarðvegur fyrir skapandi greinar. Margir listamenn hafa náð góðum árangri á heimsvísu og margt sem búið er til á Íslandi sem lýtur að hugverki og sköpun vekur eftirtekt og hlýtur viðurkenningu," segir Brynjólfur.

Mikilvæg viðspyrna við Covid-19

„Skapandi greinar hafa orðið fyrir miklu höggi í kjölfar Covid-19 faraldursins og má þar nefna menningar, tónlistar- og svið­listir. Skapandi greinar eru auðlind sem skilar efnahags- og menningarlegum gæðum til samfélagsins í formi atvinnu, framleiðslu á vöru og þjón­ustu til neyslu innanlands og útflutnings. Þetta er því mikilvægt viðspyrna við Covid-19," segir Sævar og Brynjólfur bætir við: „Nú í kjölfar faraldursins eru kjöraðstæður fyrir skapandi fólk að spyrna við fótum og fá almenning með sér í lið. Þar hefur Karolina Fund mikilvægu hlutverki að gegna með því að tengja saman skapandi fólk og almenning.“