Hrefna Rósa Sætran eigandi Grillmarkaðsins, Fiskmarkaðsins og Uppi Bar svo fátt eitt sé nefnt deilir girnilegri uppskrift af grilluðu laxa tacoi með heimatilbúnu maís- og tómatsalsa. Uppskriftin er ætluð fyrir fjóra.

Hrefna Rósa Sætran.
Hrefna Rósa Sætran.

„Bæði maíssalsað og tómatsalsað er hægt að eiga inn í ísskáp í góðan tíma svo ég mæli með að gera nóg af þessu og njóta út vikunnar. Þetta er hægt að borða með grilluðu kjöti og fisk, burrito eða bara með salati. Svo ferskt og gott. Eftir að ég byrjaði að gera mitt eigið salsa er ég hætt að kaupa tilbúna salsasósu. Jalapenó eða chili þið ráðið hvað og hvort þið notið. Líka hversu mikið þið setjið í uppskriftina. Svo mikið smekksatriði og hvað hver og einn þolir,“ segir Hrefna.

Grillað laxa taco með heimatilbúnu maís- og tómatsalsa.

Innihald:

  • 600 grömm Lax úr landeldi.
  • Salt, pipa, olía.
  • Salatostur / fetaostur.
  • 8 stk Tortillur að eigin vali (ég notaði corn tortillur).

Aðferð:

  • Skerið laxinn í bita og þerrið hann vel með pappír - það er það mikilvægasta þegar maður grillar fisk og allt annað, að hafa hráefnið ekki blautt þegar það fer á grillið. Það soðnar bara og festist ef það er þannig.
  • Penslið svo laxinn með olíu og kryddið með salti og pipar.
  • Grillið hann á rjúkandi heitu grilli í 2 - 3 mínútur á annarri hliðinni og setjið hann svo í eldfast mót með grilluðu hliðina upp.
  • Skellið eldfasta mótinu á grillið og eldið fiskinn áfram í 3 - 4 mínútur.
  • Grillið svo tortillurnar létt á meðan og setjið svo á disk.
  • Smellið svo bita af laxinum á tortilluna, maíssalsa, tómatsalsa og loks mulinn salatost yfir.

Njótið vel!

Maíssalsa

Innihald:

  • 2 Ferskir maískófar.
  • 1 stk Rauðlaukur.
  • Safi úr einu lime.
  • 2 msk Ólífuolía.
  • ½ Búnt kóríander.
  • ½ stk Grænt chili.
  • ½ tsk Cumin.
  • Salt og pipar.

Aðferð:

  • Grillaðu maísinn á heitu grilli þar til hann er tilbúinn.
  • Skerðu svo kornið af kófnum og settu í skál.
  • Skerðu laukinn smátt ásamt chilipiparnum og bættu út.
  • Bættu svo restinni af hráefninu út í og blandaðu vel saman.

Tómatsalsa

Innihald:

  • 4 stk Tómatar.
  • 2 stk Laukur.
  • 1 stk Jalapenó.
  • 3 stk Hvítlauksrif.
  • Safi úr 2 stk lime.
  • ½ Búnt kóríander.

Aðferð:

  • Grillaðu tómatana, laukana og jalapenóið heilt á grilli þar til það er orðið vel grillað.
  • Skerðu það svo gróft niður og settu í blandara ásamt hinu hráefninu og maukaðu saman - Ef þú vilt gróft salsa þá maukaru minna og ef þú vilt fínt salsa þá maukaru meira.