Ósk Gunnlaugsdóttir býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk BA-prófi í myndlist frá LHÍ árið 2019 og dvaldi eina önn við Konunglega listaháskólann í Brussel þar sem hún lagði stund á silkiprent. Ósk vinnur með fjölbreytta miðla og leiðir saman ólík form myndlistar, þar sem innblástur úr náttúru og heimspeki spilar stórt hlutverk.

Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjöldamörgum samsýningum, meðal annars á Korpúlfsstöðum og í Norræna húsinu. Nýjasta sýning hennar, Sortatíra, fór fram í Höggmyndagarði Myndhöggvarafélags Reykjavíkur í febrúar og mars 2025. Hún hefur jafnframt verið virk í íslensku listasamfélagi og sat árum saman í stjórn Myndhöggvarafélagsins.

Hvenær byrjaðirðu að búa til myndlist og hvernig kom það til að þú fórst að skapa?

Í lok síðustu aldar kom ég við á Myndlistarbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti en leiddist svo út í kvikmyndagerð í þónokkur ár og gerði alls kyns listrænar tilraunir í þann miðil auk hefðbundnari verka. En svo síðar þegar ég var komin með þrjú lítil börn og búin að fá alla mögulega útrás fyrir sköpunarþörfina á trylltum sykurmassatertum dreif ég mig í Listaháskólann og hef starfað við myndlist þaðan í frá.

Hvaða listamenn eru í uppáhaldi hjá þér?

Barbara Kruger og Pippilotti Rist hafa alla tíð verið miklir áhrifavaldar í minni list hvort sem ég hef verið að gera vídeóverk eða tvívíð verk. Svo lít ég mikið upp til Kristínar Gunnlaugsdóttur og Huldu Vilhjálms.

Hvernig er hefðbundinn vinnudagur hjá þér?

Best er að byrja marandi í hálfu kafi í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni þar sem ég skipulegg daginn og plotta næstu skref. Svo er stefnan tekin á vinnustofuna og gott kaffi þar sem ég vinn í verkum frameftir degi og undirbý næstu verk, strekki striga, skissa, vinn grafík eða lýsi fyrir silkiprent meðan tími gefst. Hvaðan ertu helst að fá innblástur þessa dagana? Þessa dagana velti ég fyrir mér sambandi merkingar og efnis og áhrif þess á áhorfandann, hvernig sagan liggur myndrænt eða táknrænt í samfélaginu og hvernig hún hefur áhrif á okkur.

Hvað hvetur þig áfram í listinni?

Forvitni.

Hverju ertu að vinna að núna/hvað er næst?

Í dag eru efnislegar/alkemískar tilraunir, fjölfeldi, áferð og mismunandi bylgjulengdir og víddir ljóss mér efst í huga. Undanfarið hef ég verið að blanda saman keramik við silkiprent og blacklight og vinna málverk um leið sem geyma efnablöndur, áferðir, hugmyndir og leyndarmál sem allt tengist einhverstaðar bæði efnislega og hugmyndafræðilega.

Umfjöllunina er að finna í nýjasta tölublaði Eftir vinnu sem kom út á miðvikudag.

Hér er tölublaðið í heild fyrir áskrifendur Viðskiptablaðsins.