Það verður spennandi laugardagur í húsakynnum bílaumboðsins ÍSBAND sem býður til frumsýninga á nýjum Jeep Avenger og Alfa Romeo Tonale næstkomandi laugardag. Þá verður einnig forsýning á nýjum Jeep Grand Cherokee.

Jeep Avenger var valinn Bíll ársins í Evrópu 2023 og er fyrsti alrafmagnaði bíllinn frá Jeep. Bíllinn hefur farið sigurför um Evrópu og undanfarið hefur hann verið að sópa að sér hverjum verðlaununum á fætur öðrum fyrir fallegt útlit og góða aksturseiginleika.

Avenger er með 400 km drægni í blönduðum akstri og 550 km innanbæjar samkvæmt WLTP-staðli. Avenger státar af 20 cm veghæð og er fáanlegur í þremur útfærslum, Longitude, Altitude og Summit.

Goðsögnin endurfædd

Nýr Grand Cherokee verður forsýndur á sýningunni og nú í fyrsta skipti í Plug-In-Hybrid útfærslu. Þarna sameinast mikil þægindi og magnaður kraftur til að takast á við erfiðar áskoranir. 380 hestöfl og drægni á rafmagni allt að 51 km samkvæmt WLTP staðli. Jeppinn er með nýtt útlit og að innan hefur hvergi verið sparað til að mæta kröfum kaupenda um gæði og vandaðan frágang.

Enginn afsláttur hefur verið gefinn af torfærueiginleikum nýs Grand Cherokee og má segja að hér hafi frekar verið bætt í. Áætlað er að afhendingar á nýjum Grand Cherokee verði síðla vors á næsta ári, en ISBAND hefur þegar hafið forsölu á bílnum.

Ítalskir sjarmörar

Nýr rafmagnaður tónn og einstök akstursupplifun er að finna í nýjum fjórhjóladrifnum Alfa Romeo Tonale í Plug-In-Hybrid útfærslu. Glæsileg ítölsk hönnun einkennir þennan ítalska sjarmör sem er með 280 hestafla tengiltvinnavél og allt að 82 km drægni á rafmagni samkvæmt WLTP-staðli.

Auk þessara þriggja bíla verður Fiat 500e sýndur. Þessi netti og sjarmerandi bíll er nú fáanlegur aftur eftir nokkurt hlé. Ítölsk tímalaus gæðahönnun eins og hún gerist best. 100% rafdrifinn bæjarsnattari með drægni allt að 309 km í blönduðum akstri og allt að 433 km innanbæjar, samkvæmt WLTP staðli. Sýningin á laugardag er í sýningarsal ÍSBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ og er opin frá kl. 12-16.