Ásdís Hrund Gísladóttir hefur tekið við starfi áhættustjóra hjá Sjóvá en hún hefur gegnt starfi sérfræðings í áhættustýringu hjá félaginu frá árinu 2020.

Áður en hún kom til starfa hjá Sjóvá vann hún sem sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti með lífeyrissjóðum og vátryggingafélögum hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Ásdís hefur lokið B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU).

Hún segist full tilhlökkunar til að takast á við nýtt hlutverk sem áhættustjóri félagsins og að það verði spennandi að taka þátt í uppbyggingu og rekstri Sjóvá.

„Ég hef starfað hjá Sjóvá allt frá árinu 2012, með hléum. Það sem hefur dregið mig að Sjóvá eru bæði spennandi verkefni og einstök vinnustaðarmenning. Hér ríkir samheldni, traust og metnaður til að tryggja ánægðari viðskiptavini,“ segir Ásdís Hrund.