Bára Hlín Kristjánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Verkefnastofu og ferlaumbóta hjá Sýn. Hún mun leiða teymi sem vinnur með mannauði, viðskiptaþróun, vörustjórnun, upplýsingatækni og fjölmiðlalausnum Sýnar sem vinna þvert á rekstrareiningar félagsins.
„Við erum mjög ánægð með að fá Báru til liðs við okkur, hún er með alþjóðlega reynslu í stórum umbreytingarvegferðum, verkefnastýringu og umfangsmiklum ferlaumbótum. Þá er hún með mikinn metnað og drifkraft fyrir nýsköpun og faglegri verkefnastýringu,“ segir Hulda Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Nýsköpunar og reksturs hjá Sýn.
Bára kemur til Sýnar frá Marel þar sem hún hefur starfað síðastliðin 5 ár. Í því starfi tók hún þátt í að móta faglega verkefnastjórnun fyrir Marel. Bára hefur sérhæft sig í breytingastjórnun og stafrænni umbreytingu undanfarin ár, með tilheyrandi áherslu á einföldun og samræmingu ferla í flóknu tækniumhverfi.
Hún er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, og sat í stjórn faghóps Stjórnvísi um breytingastjórnun 2021-2022. Á árunum 2009-2018 starfaði Bára á sviði markaðs- og sölumála í hugbúnaðarþróun, og er meðstofnandi handverksbrugghússins Álfs.
„Sýn er fyrirtæki á afskaplega spennandi stað og ég hlakka til að koma inn í þau metnaðarfullu verkefni sem liggja fyrir með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum Sýnar framúrskarandi þjónustu og virði í síbreytilegu umhverfi,“ segir Bára.