Erna Hjaltested hefur verið ráðin í starf yfirlögfræðings Isavia og tekur við af Karli Alvarssyni sem hefur gegnt starfinu síðan 2014.

Hún er með kandídatspróf í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands, héraðsdómslögmannsréttindi, meistarapróf (LL.M.) í samanburðarlögfræði frá University of Miami School of Law og alþjóðlega D-vottun í verkefnastjórnun.

Erna starfaði síðast sem lögmaður hjá embætti ríkislögmanns og þar áður sem lögfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sem yfirlögfræðingur á skrifstofu EFTA í Brussel. Hún hefur þegar hafið störf hjá Isavia.

Í tilkynningu frá Isavia segir að Karl muni halda áfram að starfa með félaginu á næstu mánuðum og styðja eftirmann sinn eftir því sem þörf er á.