Guðni Rafn Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Gallup á Íslandi. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað um árabil hjá Gallup, síðast sem sviðsstjóri yfir fjölmiðlarannsóknum og markaðsgreiningu.
Hann hefur haldið utan um samskipti við erlenda samstarfsaðila og einnig starfað sem viðskipta- og verkefnastjóri á ýmsum sviðum Gallup. Guðni sat í framkvæmdastjórn Já hf. frá árinu 2015 og hefur einnig setið í stjórn Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
„Ég er spenntur að taka við nýju hlutverki hjá Gallup og að leiða hóp sérfræðinga í rannsóknum. Hlutverk Gallup er að rannsaka hegðun og viðhorf með það að leiðarljósi að hjálpa fyrirtækjum að taka réttar ákvarðanir,” segir Guðni Rafn.
Gallup var nýlega keypt af félaginu Hamarshyl ehf. og vilja nýir eigendur efla fyrirtækið sem sjálfstætt rannsóknafyrirtæki sem segist sjá almenningi, stofnunum og fyrirtækjum fyrir áreiðanlegum og traustum upplýsingum um stöðu og þróun íslensks samfélags.
„Fáir þekkja starfsemi Gallup á Íslandi og starfsumhverfi fyrirtækisins betur en Guðni og í samtölum við hann í þessu ferli höfum við séð að hann deilir okkar sýn á það hvernig hægt er að styrkja og efla starfsemi Gallup enn frekar. Það er því mikill ávinningur fyrir okkur að fá Guðna í þetta starf,” segir Huginn Freyr Þorsteinsson, stjórnarformaður Gallup.