Tvær breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn 1912 samstæðu. Hildur Erla Björgvinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ekrunnar, dótturfélags 1912 og í hennar stað hefur Kristján Geir Gunnarsson verið ráðinn framkvæmdastjóri Emmessíss.
Í tilkynningu segir að með ráðningu þeirra beggja komi kraftmiklir og reynslumiklir leiðtogar sem styrki framkvæmdastjórnina og forystu fyrirtækjanna sem þau stýra.
Hildur Erla hefur starfað í yfir 20 ár sem stjórnandi og setið í stjórn nokkurra fyrirtækja. Hún er með B.A. gráðu í sálfræði frá Florida International University og M.Sc. gráðu í stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá sama háskóla.
„Tíminn hjá Emmessís hefur verið frábær. Við höfum náð góðum árangri í rekstrinum og vörumerkið Emmessís hefur aldrei verið eins sterkt og nú. Það eru bjartir tímar fram undan hjá Emmessís og ég veit að fyrirtækið er í góðum höndum. Ég hlakka til nýrra verkefna hjá Ekrunni, en við stígum stórhuga skref inn í næstkomandi tímabil þar sem viðskiptavinir okkar verða í forgrunni,“ segir Hildur.
Kristján Geir hefur þá 20 ára reynslu af stjórnun og starfaði áður meðal annars sem rekstrarstjóri hjá Gerði ehf, framkvæmdastjóri Odda og framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Nóa Síríus. Hann er með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School og B.Sc.-gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
„Ég er virkilega spenntur fyrir næstu skrefum með Emmessís sem hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár. Hjá okkur er flottur hópur af reynslumiklu og öflugu starfsfólki og ég hlakka til að fá að taka þátt í þeirri vegferð sem fyrirtækið er á,“ segir Kristján.
„Það er ánægjuefni að bjóða Kristján Geir velkominn til okkar hjá 1912 og að sama skapi sjá Hildi Erlu eflast enn frekar og taka við enn einni áskoruninni innan félagsins. Bæði Ekran og Emmessís standa á spennandi tímamótum og er mikill fengur að fá jafn öfluga leiðtoga til liðs við þann flotta hóp sem fyrir er hjá félögunum. Reynsla þeirra og þekking mun nýtast vel í þeim áskorunum sem fram undan eru,“ segir Ari Fenger, forstjóri 1912.