Krists Ezerins hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri DHL Express á Íslandi. Þá hefur Auðunn Sólberg Björgvinsson verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins.
Auðunn Sólberg snýr aftur til DHL eftir 12 ára fjarveru hjá Nova þar sem hann gegndi stöðu sölustjóra.
„Ég þekki DHL mjög vel. Ég byrjaði sem bílstjóri og hef unnið flestar stöður hjá fyrirtækinu. DHL hefur alltaf átt stað í hjarta mínu og það er gaman að snúa aftur til starfa hjá fyrirtækinu. Það hefur margt breyst á þeim 12 árum sem ég hef verið í burtu en margt af því góða starfsfólki sem ég vann með er hér enn enda heldur fyrirtækið vel á starfsfólki sem er ánægjulegt,“ segir Auðunn.
DHL sér um hraðsendingar og fraktsendingar um allan heim í lofti, á sjó og landi en fyrirtækið er starfrækt um allan heim.
„Við erum að vinna í að stækka og efla starfsemina hér á Íslandi og styrkja enn frekar sendingalausnir og þjónustustig fyrir okkar viðskiptavini. Við erum meðal annars að stækka húsnæði okkar á Keflavíkurflugvelli. Það eru mörg tækifæri fram undan í þessum geira og ég hlakka til að takast á við spennandi verkefni hér á landi,“ segir Krists en hann var áður framkvæmdastjóri DHL í Lettlandi og hefur starfað í 18 ár hjá fyrirtækinu.