Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára. Hún hefur störf 15. september næstkomandi.
Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði Dóru mjög vel hæfa en alls sóttu sex um embættið.
Sigríður Dóra er með læknapróf frá Háskóla Íslands, sérfræðipróf í heimilislækningum og diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu.
Frá árinu 2019 hefur hún verið framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áður hefur hún gegnt stöðu yfirlæknis á tveimur heilsugæslustöðvum, starfað sem umdæmislæknir sóttvarna og einnig sem rekstrarstjóri heilsugæslustöðvar.
Í áliti hæfnisnefndar kemur meðal annars fram að auk langrar reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu hafi Sigríður Dóra reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun. Það sé mat nefndarinnar að Sigríður Dóra sé góður leiðtogi og mjög vel hæf til að gegna embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.