Bláa lónið hefur tekið ákvörðun um að opna valdar starfs­stöðvar í dag, sam­kvæmt til­kynningu á vef fyrir­tækisins. Opnunin nær til Bláa lónsins, Retreat Spa og Lava Re­staurant.

Tíma­bundin lokun á Retreat Hótel hefur verið fram­lengd út 7. desember og mun það opna sunnu­daginn 8. desember.

Sam­kvæmt fyrir­tækinu er ákvörðunin tekin í nánu samráði við yfir­völd en sem fyrr fylgjum við fyrir­mælum þeirra í hvívetna.

„Athygli gesta er vakin á því að starfsstöðvar okkar eru innan hættusvæðis vegna jarðhræringa samkvæmt mati Veðurstofu Íslands. Komi til stórra jarðskjálfta eða mögulegra eldhræringa verða gestir látnir vita og viðeigandi ráðstafanir gerðar,” segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins.