Fjárfestar bíða spenntir eftir uppgjöri örflöguframleiðandans Nvidia sem birtist eftir lokun markaða vestanhafs.
Greiningaraðilar búast við tvöföldun tekna og afkomu á öðrum fjórðungi í samanburði við annan ársfjórðung í fyrra.
Samkvæmt The Wall Street Journal munu tekjur félagsins einnig gefa skýrt merki um eftirspurn eftir gervigreind þar sem örflögur félagsins eru hvað mest notaðar í þróun gervigreindar.
Hlutabréfaverð Nvidia hefur hækkað um 160% á árinu, þar af 10% síðastliðinn mánuð en fjárfestar eru nú að kaupa og selja afleiður í tengslum við gengi Nvidia

Velta með valréttarsamninga með bréf í Kauphöllinni í New York hefur verið gríðarlega mikil síðustu daga en samkvæmt WSJ eru sumir fjárfestar að veðja stórt.
Dæmi eru um valréttarsamninga um kauprétt í kringum 140 dali á hlut en gengi Nvidia stendur í 125 dölum þegar þetta er skrifað.
Gengi Nvidia lækkaði í júlímánuði og segir WSJ að almennir fjárfestar hafi ákveðið að kaupa bréf í kjölfarið.
Velta almennra fjárfesta með bréf Nvidia náði yfir 7,4 milljarða Bandaríkjadali 1. ágúst sem er þriðja mesta velta almennra fjárfesta á einum degi frá því að Nasdaq byrjaði að taka gögnin saman árið 2016.
Gengi Nvidia lækkaði um 6,7% 1. ágúst sem var versti viðskiptadagur ársins fyrir gengi Nvidia.
Samkvæmt WSJ er almennt spáð að gengi Nvidia muni hækka um 11% frá uppgjöri og til lokunar markaða á föstudaginn.