Hlutabréfaverð skóframleiðandans Dr. Martens tók væna dýfu í Kauphöllinni í Lundúnum í morgun eftir að greint var frá því að hópur kjölfestufjárfesta hefði losað um 70 milljón hluti á gengi sem var 10% undir markaðsvirði.
Samkvæmt MarketWatch sá Goldman Sachs um söluna og var gengið í viðskiptunum 57,85 penní.
Hlutabréf Dr. Martens hafa lækkað um 17% í viðskiptum dagsins og hefur gengið ekki verið lægra frá því að félagið fór á markað með 3,7 milljarða punda frumútboði í janúar 2021.
Þegar þetta er skrifað stendur gengið í 53,24 pennís.

Stærsti hluthafinn ekki í hópnum
Samkvæmt MarketWatch hefur ekki verið greint frá hverjir voru á söluhliðinni í viðskiptum gærdagsins en losað var um tæplega 14% hlut í félaginu á 9,96% afslætti sé miðað við dagslokagengi fimmtudagsins.
Stærsti hluthafi Dr. Martens, IngreGrsy, var ekki meðal þeirra sem seldu í félaginu í gær samkvæmt MarketWatch. IngreGrsy eignaðist um 38,4% hlut í Dr. Martens í júní á þessu ári vegna endurskipulagningar hjá Permira sem hefur átt í þýska skóframleiðandanum frá árinu 2014.
Hlutabréfaverð Dr. Martens hefur lækkað um 64% síðastliðna tólf mánuði en gengið tók síðast dýfu í nóvember í fyrra þegar félagið birti fjórðu afkomuviðvörunina í röð.