Nýsköpunarvikan Iceland Innovation Week hefst í næstu viku og munu þá fulltrúar fjölmargra erlendra sjóða og fyrirtækja heimsækja Ísland til að kynnast betur sprotaumhverfi íslenskra frumkvöðla.
Eitt þeirra fyrirtækja sem munu senda teymi til landsins er leiðandi tölvuvinnslufyrirtækið Nvidia og verður það í fyrsta sinn sem fulltrúar frá því fyrirtæki taka þátt í Iceland Innovation Week.
Isabella Holmberg, Partner Manager hjá Nvidia fyrir Norðurlöndin og Bretland, mun leiða teymi fyrirtækisins en hún segir í samtali við Viðskiptablaðið að fyrirtæki hennar sé búið að fylgjast náið með vexti íslensku tæknisenunnar.
„Það sem gerir Ísland að aðlaðandi stað fyrir nýsköpun er þessi einstaka blanda af sköpunargáfu, tæknilegum hæfileikum og sterkum rannsóknarstofnunum. Þátttaka Nvidia í Iceland Innovation Week er líka frábært tækifæri til að tengjast betur þessu vaxandi vistkerfi og sjá hvernig Nvidia getur stutt og unnið með íslenska samfélaginu.“
Hún verður jafnframt með erindi í Kolaportinu miðvikudaginn 14. maí en þar mun Isabella fara yfir hvernig gervigreind og tölvuþróun eru að umbreyta atvinnugreinum eins og heilbrigðisþjónustu, lífvísindum, framleiðslu, rannsóknum og fjölmiðlum.
„Við munum einnig varpa ljósi á það hvernig sprotafyrirtæki geti nýtt sér forrit eins og NVIDIA Inception til að flýta fyrir tæknilegri nýsköpun og hagvexti.“

Aðspurð um markmið Nvidia á Íslandi segir Isabella að fyrirtækið vilji leitast eftir samstarfi við sprotafyrirtæki í gegnum sameiginleg verkefni eða með því að tengja íslenska frumkvöðla við alþjóðlega tæknisamfélag Nvidia.
Hún ítrekar hversu mikilvægt það er fyrir Nvidia að vinna með samstarfsaðilum innan vistkerfisins en fyrirtækið kemur til Íslands í gegnum Advania, sem er samstarfsaðili Nvidia á viðburðinum.
„Sprotafyrirtæki eru kjarni nýsköpunar og við sjáum okkur spila hvetjandi hlutverk. Við viljum gerast tæknilegur og stefnumótandi samstarfsaðili fyrir íslensk sprotafyrirtæki og hjálpa þeim að vaxa og ná til alþjóðlegs markhóps. Markmið okkar er að byggja upp langtímasambönd.“
Isabella segir að Ísland hafi allt það sem þarf til að spila sterkt hlutverk í alþjóðlegu vistkerfi gervigreindar. Landfræðileg staðsetning Íslands geri það þá kleift að brúa saman mismunandi markmið og sjónarmið og segir hún það vera mjög dýrmætt í þróun gervigreindar.
„Við erum mjög hrifin af ákafa og einbeitingu margra íslenskra sprotafyrirtækja. Við sjáum mikla skuldbindingu meðal þeirra til að byggja upp lausnir fyrir alþjóðlegan markað. Það að skilja hvar sprotafyrirtæki þurfa á stuðningi að halda og hvar Nvidia getur komið sterkt inn er lykillinn að því að byggja upp sterkt samstarf.“