Malbikstöðin hagnaðist um 211 milljónir króna í fyrra en árið áður var hagnaður félagsins ríflega tvöfalt hærri, eða 458 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 2,9 milljörðum og drógust saman um 8% á milli áranna 2023 og 2024. Eignir félagsins námu 3,3 milljörðum í lok síðasta árs og eigið fé 2,1 milljarði.
Í ársreikningi kemur fram að síðasta haust hafi stjórn Malbikstöðvarinnar ákveðið að leggja af starfsemi félagsins sem tengist jarðvegsvinnu og leggja áherslu á kjarnastarfsemi sína, sem snýr að framleiðslu og lagningu malbiks. Fyrirhugað sé að selja eignir sem tengjast jarðvegsvinnu og gert ráð fyrir að þær muni seljast á næstu 12 mánuðum. Mat eignanna í ársreikningi er 172 milljónir.
Þá samþykkti stjórnin einnig að skipta félaginu. Stefnt sé að því að ákvörðun um skiptingu félagsins verði tekin til afgreiðslu á hluthafafundi og viðtökufélagsins fyrir lok apríl. Eignir sem færast út úr efnahag félagsins við skiptinguna séu fasteignir félagsins og fjárfestingaeignir. „Efnahags- og rekstrarleg ástæða skiptingarinnar er að breyta rekstri hins skipta félags þannig að rekstur fasteigna og lóða verði aðskilinn frá framleiðslu og lagningu á malbiki sem þarfnast annars konar rekstrarákvarðanna. Þannig lýtur stjórnun og rekstrarákvarðanir hins skipta félags öðrum lögmálum en rekstur fasteigna að mati stjórnar félagsins. Þá liggur fyrir að fjárfestingaeignir hafa ekki verið nýttar í rekstri félagsins og óvissa er um hvort þær verði nýttar af rekstrarfélaginu á komandi árum,“ segir í ársreikningi.
Stjórn félagsins leggur til að 150 milljónir verði greiddar í arð til hluthafa á þessu ári. Vilhjálmur Þór Matthíasson er eigandi félagsins.
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun.