Saga Seafood hagnaðist um 461 milljón króna árið 2023, samanborið við 77 milljóna hagnað árið áður.
Rekja má stóran hluta hagnaðarins til kaupa Vinnslustöðvarinnar á Leo Seafood en félagið átti 20% eignarhlut í síðarnefnda félaginu við söluna.

Samkvæmt ársreikningi VSV nam kaupverðið 1,5 milljarði króna og því má ætla að Saga Seafood hafi fengið um 300 milljónir í sinn hlut við söluna.
Eignir Saga Seafood voru bókfærðar á 2,1 milljarð um áramótin, samanborið við 241 milljón árið áður. Eigið fé nam 553 milljónum.
Félagið er í eigu Daða Pálssonar, forstjóra Laxeyjar og fyrrum framkvæmdastjóra Leo Seafood, og fjölskyldu hans.