Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 852 fasteignum í Grindavík eða 93% þeirra sem sótt hafa um, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Félagið hefur tekið við um 650 eignum samhliða því að unnið er að lokauppgjöri við seljendur og frágangi afsala. Félaginu hafa alls borist 917 umsóknir, auk 18 umsókna frá búseturéttarhöfum.
Heildarfjárfesting félagsins til þessa er rúmir 65 milljarðar króna. Þar af eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur tæpir 45 milljarðar og yfirtekin húsnæðislán rúmir 20 milljarðar.

„Það er ánægjulegt að okkur hefur nú þegar tekist að koma rúmlega 850 fjölskyldum í Grindavík til hjálpar í þessum erfiðu aðstæðum. Fram undan er vissulega ákveðin biðstaða en við vonum að náttúruöflin verði okkur að lokum hliðholl svo huga megi að framtíð og uppbyggingu Grindavíkur fljótlega aftur.“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.
Hollvinasamningur um afnot af húsum í boði
Samkvæmt tilkynningu hyggst félagið bjóða fyrrum eigendum húsnæðis í Grindavík upp á bæði leigusamninga og svokallaða hollvinasamninga, en forsenda þeirra er þó að öruggt sé talið að dvelja í Grindavík.
„Hollvinasamningur mun byggja á samstarfi Þórkötlu við seljendur eignanna um umhirðu, minni háttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Ákvörðun um framkvæmd þessara samninga verður tekin um leið og aðstæður leyfa,“ segir í tilkynningunni.